Ég vakna upp fyrir allar aldir þessa dagana. Sólin er varla byrjuð að birta til þegar ég opna augun. Fyndið. Og ef ég er ekki vöknuð snemma, og er vakin, þá er það allt í einu bara ekkert vandamál lengur. Engin geðvonska!
Anyway.
Kæró svaf eins og steinn, og næturgesturinn jafnvel meira rotaður. Svo ég tók til. Áttaði mig á því að gólfið var þakið laufblöðum sem ég greip mig við að stíga á. Djöfulsins rooook, ég segi ekki annað. Þetta sumar var bara allt of fljótt að líða fyrir minn smekk. Ég væri til í að lengja það um allavega heilann mánuð í viðbót. Sjálf myndi ég vilja hafa eitt ferðalag inní þessum mánuði sem væri út fyrir landssteina, eina útilegu, kaupa mér 50 plötur og liggja úti í garði og sleikja sólskynið. Já í alveg allnokkra daga :P
Gærkvöldið? Ágætisræma. Afmæli hjá mjög kærri vinkonu og ég hitti besta vin minn sem er fluttur til Frakklands. Ég var samt í engu stuði og ákvað að skella mér í fyrra lagi heim. Ég náði ekki mörgum mínutum til samræða eftir að ég kom inn. Lagðist upp í og dó. Geri aðrir betur á 2 klst djammi og 2 voodkaglösum.
Ég ætla að henda mér í laugina. Garðabæjar... Ég á ekki sundlaug :D
Xox.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
.jpg)
No comments:
Post a Comment